Landsbankinn vill helst selja „Athafnaland“ Ístaks á Tungumelum í Mosfellsbæ í einu lagi. Landið sem er samtals 122 hektarar að stærð hefur verið auglýst til sölu.

Landsbankinn vill helst selja „Athafnaland“ Ístaks á Tungumelum í Mosfellsbæ í einu lagi. Landið sem er samtals 122 hektarar að stærð hefur verið auglýst til sölu.

Ístak keypti land Leirvogstungu, austan Vesturlandsvegar og undir Mosfell, og hóf að þróa þar byggingasvæði fyrir fyrirtæki sem þurfa að byggja stór hús yfir starfsemi sína. Búið var að skipuleggja hluta svæðisins og hafin gatnagerð þegar vinnu var hætt vegna bankahrunsins. Höfuðstöðvar Ístaks eru því eina mannvirkið sem þarna stendur. 6