David Harsent
David Harsent
Ljóðskáldið David Harsent hlaut hin virtu verðlaun sem kennt eru við TS Eliot, fyrir ljóðasafnið Fire Songs. Verðlaunin eru veitt skáldum sem gefa út á Bretlandi og Írlandi og nemur verðlaunaféð um fjórum milljónum króna.

Ljóðskáldið David Harsent hlaut hin virtu verðlaun sem kennt eru við TS Eliot, fyrir ljóðasafnið Fire Songs.

Verðlaunin eru veitt skáldum sem gefa út á Bretlandi og Írlandi og nemur verðlaunaféð um fjórum milljónum króna.

Harsent, sem er prófessor í skapandi skrifum við háskólann í Roehampton, hefur fjórum sinnum áður verið valinn á svokallaðan „stuttlista“ verðlaunanna. Formaður dómnefndar segir hann vera skáld fyrir „dimma og ógnþrungna daga“.

Harsent hefur áður hlotið virtar viðurkenningar fyrir ljóð sín.