— Morgunblaðið/Golli
Mikil hálka hefur verið í Reykjavík og kalt í veðri. Þessi gangandi vegfarandi í Þingholtunum lét frosthörkurnar þó ekkert á sig fá, heldur bjó sig bara þeim mun betur áður en haldið var af stað að heiman.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður áfram kalt í veðri næstu daga og má jafnvel gera ráð fyrir um átta stiga frosti þar sem veðrið verður kaldast.