Bastian Schweinsteiger
Bastian Schweinsteiger
Dagur Sigurðsson og hans menn í þýska landsliðinu í handknattleik hafa boðið stjörnunum í Bayern München, þýska meistaraliðinu í knattspyrnu, að koma og styðja landsliðið í fyrsta leik þess á HM í Katar sem er gegn Póllandi á föstudaginn.

Dagur Sigurðsson og hans menn í þýska landsliðinu í handknattleik hafa boðið stjörnunum í Bayern München, þýska meistaraliðinu í knattspyrnu, að koma og styðja landsliðið í fyrsta leik þess á HM í Katar sem er gegn Póllandi á föstudaginn. Pep Guardiola og lærisveinar hans eru staddir í Doha í æfingaferðalagi sem stendur yfir fram á laugardag en ekki er ljóst hvort þeir þekkist boðið. Thomas Müller, Manuel Neuer og Bastian Schweinsteiger, sem allir urðu heimsmeistarar í sumar, hafa hins vegar sent löndum sínum baráttukveðju á Youtube. sindris@mbl.is