Betur fór en á horfðist þegar tvö snjóflóð fellu úr Súðavíkurhlíð á fimmta tímanum í gær. Ökumaður sem var á svæðinu þegar fyrra flóðið féll slapp með skrekkinn. Hann hafði samband við sveitarstjórann sem fór að sækja hann. Skömmu eftir að þeir komust í öruggt skjól féll annað snjóflóð.
Pétur G. Markan, sveitarstjóri í Súðarvíkurhreppi, sagði í samtali við mbl.is í gær að þarna hefði munað hársbreidd að stórslys yrði. „Sveitungi minn hringdi og tjáði mér að hann hefði keyrt upp á snjóflóð; það skeikaði aðeins nokkrum sekúndum í sjálfu sér,“ sagði Pétur.
Vá sem getur skollið á
„Það sem gerist er að flóðið fellur fyrir framan hann þannig að lukkan er að hann keyrir upp á flóðið í staðinn fyrir að lenda í því að fá það inn í hliðina,“ sagði Pétur og bætti við að hann hefði í framhaldinu lagt af stað til að sækja viðkomandi. „Þegar búið var að koma öllum í heila höfn þá ætluðum við að reyna að koma bílnum upp en þá féll annað flóð.“ Aðspurður sagði Pétur að snjóflóðin hefðu verið miðlungsstór. Hann sagði starfsmenn Vegagerðarinnar hafa náð að moka sig í gegn til að aðstoða við að losa bíla sem voru fastir Álftafjarðarmegin og Skutulsfjarðarmegin. Hlíðin var lokuð í gær vegna snjóflóðahættu og taka á stöðuna í dag. „Þetta lýsir vel vánni sem vofir okkur með Súðavíkurhlíð. Í dag [í gær] er þannig lagað ekkert að veðri og það áttu ekki margir von á þessu. En það segir okkur aftur að þetta er vágestur sem getur einfaldlega komið hvenær sem er,“ sagði Pétur. jonpetur@mbl.is