Stefna VR gegn íslenska ríkinu vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Stefna VR gegn íslenska ríkinu vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

VR telur að íslenska ríkinu hafi verið óheimilt að skerða rétt félagsmanna til atvinnuleysisbóta með því að stytta bótatímabilið um sex mánuði, eins og breytingarnar kveða á um.

Að mati VR var enginn annar kostur í stöðunni en að höfða mál til að fá ákvörðun ríkisins hnekkt. Stefnan var lögð fram í héraðsdómi 2. janúar síðastliðinn og birt ríkinu í síðustu viku. Félagið óskaði eftir flýtimeðferð málsins fyrir dómstólum en þeirri ósk var hafnað í héraðsdómi í gærmorgun.

Í stefnunni bendir VR á að breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, sem tóku gildi þann 1. janúar sl., hafi ekki verið í samræmi við meginreglur stjórnskipunar um réttaröryggi og fyrirsjáanleika.

Ekki gætt meðalhófs

Eignarréttur þeirra sem þegar fá atvinnuleysisbætur hafi verið skertur með afturvirkum og ólögmætum hætti og gengið hafi verið gegn réttaröryggi þeirra. Lagasetningin hafi verið byggð á ómálefnalegum forsendum og ekki verið gætt meðalhófs. Með því að höfða mál er ætlun félagsins að koma í veg fyrir að breytingarnar gildi um félagsmenn VR, segir í frétt á vef félagsins.

Félagsmenn VR eru um 30 þúsund, þar af voru um eitt þúsund á atvinnuleysisskrá um áramótin. Þann 1. janúar missti 81 félagsmaður VR rétt á atvinnuleysisbótum, af um 500 manns á landinu öllu.