— Morgunblaðið/Ól.K.M.
23. janúar 1907 Togarinn Jón forseti, fyrsti botnvörpungurinn sem Íslendingar létu smíða, kom til landsins. 23. janúar 1973 Eldgos hófst í Heimaey, um kl. 2 að nóttu. „Jarðeldar ógna byggð í Vestmannaeyjum,“ sagði Þjóðviljinn.

23. janúar 1907

Togarinn Jón forseti, fyrsti botnvörpungurinn sem Íslendingar létu smíða, kom til landsins.

23. janúar 1973

Eldgos hófst í Heimaey, um kl. 2 að nóttu. „Jarðeldar ógna byggð í Vestmannaeyjum,“ sagði Þjóðviljinn. „Eldur og eimyrja vall upp úr tveggja kílómetra langri eldgjá,“ sagði Vísir. Langflestir 5.500 íbúa Vestmannaeyja voru fluttir til lands á örfáum klukkustundum. Gefin voru út aukablöð af Morgunblaðinu, Tímanum og Þjóðviljanum. Um þrjátíu stundum fyrir upphaf gossins varð sérkennileg og áköf hrina af litlum jarðskjálftum undir eynni. Gosið stóð fram í júní.

23. janúar 1988

Mesta frost í sjötíu ár mældist í Möðrudal á Fjöllum, 32,5 stig á Celsius. Svipað frost var í Mývatnssveit. Erfitt var að gangsetja vélknúin ökutæki og vatn fraus í leiðslum.

23. janúar 2001

Forseti Hæstaréttar svaraði bréflega fyrirspurn forseta Alþingis um túlkun á svonefndum öryrkjadómi. Bréfið olli „nokkru uppnámi“ á Alþingi, að sögn Morgunblaðsins, enda ekki fordæmi fyrir því að dómarar skýrðu dóma sína á þennan hátt. „Hörkudeilur um Hæstarétt,“ sagði DV.

Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson