Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti einróma á fundi sínum í gær að nota andvirði sölu hlutabréfa í HS Veitum til að borga niður skuldir bæjarins. Að sögn Haraldar L. Haraldssonar bæjarstjóra er það í takt við áherslu bæjarstjórnarinnar á að efla fjárhagsstöðu bæjarins. Um er að ræða 300 milljón króna upphæð. Á hluthafafundi HS Veitna hinn 19. janúar síðastliðinn var samþykkt að kaupa eigin hlutabréf af hluthöfum. Á fundinum í gær var salan á hlutabréfum samþykkt og samþykkt að nota upphæðina til að greiða niður höfuðstól langtímalána hjá sveitarfélaginu. Jafnframt var fjármálastjóra og bæjarstjóra falið að skoða hvernig þessi fjárhæð nýtist best með tilliti til vaxtakostnaðar og uppgreiðslugjalda sem eru mismunandi á langtímaskuldbindingum sveitarfélagsins, og gera tillögu til bæjarráðs um ráðstöfun fjárhæðarinnar.
bmo@mbl.is