Náttúruperla Viðey í allri sinni dýrð.
Náttúruperla Viðey í allri sinni dýrð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.

Bergljót Friðriksdóttir

beggo@mbl.is „Viðey er sannkölluð náttúruperla; eftir aðeins fimm mínútna siglingu eru gestir komnir langt frá skarkala borgarinnar og yfir á kyrrláta eyju með einstakri náttúrufegurð, listaverkum, fuglalífi, fallegri fjöru og sögu við hvert fótmál,“ segir Ágústa Rós Árnadóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, sem Viðey heyrir nú undir. „Einn af mörgum kostum eyjunnar er að þar færist ró yfir mannskapinn, enginn getur rokið í burtu á annan fund og þar er mjög gott að einbeita sér.“

Ágústa segir Viðeyjarstofu frábæra til fundahalda, bæði fyrir stærri og minni hópa. „Þar er nettenging, skjávarpi og allt sem til þarf. Þetta er elsta steinhús landsins, það var byggt sem embættisbústaður af Skúla Magnússyni landfógeta á árunum 1752-1755, og þarna hafa margir merkir menn úr Íslandssögunni búið og tekið ákvarðanir sem höfðu áhrif á gang mála í íslensku þjóðfélagi. Það gefur fundaaðstöðinni óhjákvæmilega ákveðna vigt og virkar inspírerandi á fundagesti. Við hlið Viðeyjarstofu stendur svo Viðeyjarkirkja, en hún er með upprunalegum innréttingum sem eru þær elstu á landinu.“

List með leiðsögn

Hún bendir á fjölmarga kosti þess að stefna funda- og ráðstefnugestum út í Viðey. „Eyjan er afar gróðursæl og var öldum saman talin ein besta bújörð landsins. Þegar vel viðrar er algjör draumur að spóka sig á eyjunni og setjast að því loknu inn í Viðeyjarstofu og fá sér eitthvað gott að borða. Flestir þekkja Friðarsúlu Yoko Ono, en færri vita að á vesturhluta eyjarinnar eru verk eftir bandaríska skúlptúrlistamanninn Richard Serra. Þar er einstaklega fallegt að ganga um, spá og spekúlera út frá verkum hans.

Í Viðey upplifir fólk friðsæld og vellíðan, sem hefur tvímælalaust jákvæð áhrif þegar kemur að löngum fundasetum og mikilvægum ákvarðanatökum. Á sumrin gefst sérstaklega gott tækifæri fyrir hópa til að hristast saman með hópefli, eða með göngu um eyjuna undir leiðsögn, og enda svo á kvöldverð í Viðeyjarstofu. Það má heldur ekki gleyma því að það er skemmtun í sjálfu sér að sigla yfir Kollafjörðinn, sérstaklega ef tekin er ferjan frá gömlu höfninni í Reykjavík, þá er þetta um 15 mínútna falleg sigling. Oftast er þó farið frá Skarfabakka, þar eru næg bílastæði og ferðin tekur eins og áður sagði aðeins fimm mínútur.“

Erlendir gestir

Reykjavíkurborg fékk Viðeyjarstofu að gjöf frá íslenska ríkinu á 200 ára afmæli borgarinnar árið 1986. Hófst þá mikil uppbygging á húsinu sem tók tvö ár, að sögn Ágústu. „Viðeyjarstofa var opnuð í núverandi mynd 1988 og þar hefur verið veitingarekstur æ síðan, ásamt því að húsnæðið hefur verið leigt út fyrir fundi, veislur, móttökur og annað slíkt. Húsgögnin voru endurnýjuð árið 2008 og þá var lögð áhersla að velja íslenska hönnun, í stað þeirrar dönsku sem varð fyrir valinu 20 árum fyrr.“

Aðspurð segir Ágústa vinsælt að boða erlenda gesti á fundi og ráðstefnur í Viðey. „Útlendingar eru sérstaklega áhugasamir um Friðarsúluna og ástæðu þess að Yoko Ono valdi listaverki sínu stað í Viðey. Erlendu gestirnir heillast af friðsældinni og útsýninu til allra átta, það kemur þeim á óvart hve mikið líf var í eyjunni fyrr á öldum og hve mikil saga býr í Viðey.“

Gamla skólastofan

Á neðri hæð Viðeyjarstofa eru tvö fundaherbergi, sem hvort um sig rúma um 20 manns, og á efri hæð, stofuloftinu, er 150 manna salur. „Jafnframt nýtist Gamla skólahúsið vel undir fundi og ráðstefnur; það var reist árið 1928 og heyrði skólinn undir Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, enda tilheyrði Viðey þá Seltjarnarneshreppi.

Gamla skólahúsið er í austurhluta eyjarinnar, í um það bil 15-20 mínútna göngufjarlægð frá bryggjunni; þar er ekki nettenging og það hentar vel þeim sem vilja enga truflun. Í Gamla skólahúsinu eru tvö stór rými sem hvort um sig rúma um 25 manns, annars vegar er um að ræða gömlu skólastofuna og hins vegar íþróttasalinn. Þar er útigrill sem hægt er að nota ef vill og rústir þorpsins frá tímum Milljónafélagsins eru steinsnar frá skólahúsinu.“

Gallery Restaurant-Hótel Holt annast veitingaþjónustu í Viðeyjarstofu og er hægt að leigja húsið til fundarhalda með veitingum. „Boðið er upp á fjölbreyttan mat, allt frá léttum kaffiveitingum yfir í margrétta málsverði. Hægt er að sníða veitingar og þjónustu að þörfum hvers og eins hóps. Starfsfólkið hefur mikla reynslu af því að halda utan um ýmsa viðburði, stóra sem smáa, og funda- og ráðstefnugestir verða ekki sviknir af þjónustu þeirra.“

Spurð nánar út í siglingar út í Viðey segir Ágústa fyrirtækið Eldingu halda uppi reglulegum áætlunarferðum út í eyjuna allt árið um kring. „Á sumrin er siglt á hverjum degi en á veturna aðeins um helgar. Hægt er að nálgast siglingaráætlunina, ásamt öllum frekari upplýsingum, á videy.com. Hins vegar er mjög algengt að hópar vilja fara út í eyju utan hefðbundins áætlunartíma og þá er lítið mál að panta ferju hjá Eldingu. Við eigum í mjög góðu samstarfi við fyrirtækið, þau eru afar liðleg og reyna að verða við öllum óskum viðskiptavina.“