María Ágústsdóttir
María Ágústsdóttir
Eftir Maríu Ágústsdóttur: "Beðið er fyrir fátækum, þolendum heimilisofbeldis og mansals, hælisleitendum, ungum mæðrum, fólki með HIV/alnæmi og konum með brjóstakrabbamein."

Fyrir 80 árum, þann 8. mars 1935, var alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur á Íslandi í fyrsta sinn. Það voru konurnar í Kristniboðsfélagi kvenna sem boðuðu til almennrar bænasamkomu í Betaníu síðdegis þann dag undir forystu Guðrúnar Lárusdóttur, rithöfundar og alþingismanns. Engar fregnir er að finna af bænadeginum hérlendis næstu áratugi en frá 1957 höfðu Hjálpræðisherskonur frumkvæði að árlegri samkomu af þessu tilefni. Á sjöunda áratugnum safnaði Auður Eir Vilhjálmsdóttir, síðar séra, saman samkirkjulegum hópi kvenna til undirbúnings og framkvæmdar deginum og starfar sá hópur enn, þó aðrar konur hafi komið í stað frumherjanna.

Rætur á 19. öld

Alþjóðlegur bænadagur kvenna á sér rætur í N-Ameríku á 19. öld og er ávallt haldinn fyrsta föstudag í mars, að þessu sinni 6. mars. Deginum er m.a. fagnað með kvöldsamkomum í Reykjavík, í Miðfirði, á Akureyri og í Stykkishólmi. Í Vestmannaeyjum er gengin bænaganga frá Landakirkju kl. 17, beðið fyrir stofnunum og fyrirtækjum bæjarins og síðan safnast til bænastundar kl. 18 í Stafkirkjunni. Víða um land munu prestar og forstöðumenn trúfélaga taka undir bænarefni dagsins í guðsþjónustum og samkomum helgarinnar sem á einkar vel við þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Upplýst bæn, bæn í verki

Yfirskrift dagsins er: Upplýst bæn, bæn í verki. Mismunandi lönd eru í brennidepli hverju sinni og áhersla á að fræðast um veruleika kvenna á fjarlægum slóðum til að geta beðið með skýrum hætti og veitt hagnýta aðstoð þegar svo ber undir. Fræðslu-, bænar- og myndefni kemur frá Bahamaeyjum þetta árið og er orðalag Bahama-kvenna litríkt og djúpt. Sérstök bænarefni eru fátækar konur, þolendur heimilisofbeldis, flóttafólk, hælisleitendur og þolendur mansals, ungar mæður og einstæðir foreldrar, fólk með HIV/alnæmi og konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein. Þakkað er fyrir gjöf lífsins og margbreytileika sköpunarinnar, ást Guðs í Jesú Kristi og einingu í trú, von og kærleika í samfélagi kvenna um allan heim.

Kosningaréttur kvenna

Í bæn frá Íslandi er minnst kosningaréttar kvenna í 100 ár og 200 ára afmælis Hins íslenska biblíufélags og þess að 80 ár eru liðin frá því að bænadagur kvenna var fyrst haldinn hátíðlegur hérlendis. Viðburði bænadags kvenna má finna á viðburðaskrá afmælisnefndar kosningaréttar kvenna í 100 ár, http://kosningarettur100ara.is/. Konur á Bahamaeyjum fengu kosningarétt árið 1962 og er forvígiskvennanna sérstaklega getið í efninu sem sent var út í gegnum alþjóðaskrifstofu bænadags kvenna í New York.

Höfundur er tengiliður landsnefndar alþjóðlegs bænadags kvenna.

Höf.: Maríu Ágústsdóttur