[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Liðaðir lokkar, grófar fléttur, vafningar og fínlegt skraut einkenna hártískuna hjá fermingarstúlkunum en drengirnir kjósa langflestir stuttklippt hár og stílhreint, að sögn Sigrúnar Ægisdóttur, hárgreiðslumeistara og eiganda Hársögu.

Vorið er alltaf skemmtilegur og annasamur tími hjá okkur og reyndar hefst undirbúningurinn fyrir fermingarnar strax í febrúar,“ segir Sigrún Ægisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Hársögu á Hótel Sögu. „Þá byrjum við fagfólkið að leggja línurnar í fermingarhártískunni, kynnum okkur hvað er nýtt og spennandi og tökum auðvitað alltaf mið af helstu tískustraumum erlendis.“

Hún segir nauðsynlegt fyrir fermingarbörnin að hafa vaðið fyrir neðan sig og bóka tíma í klippingu og hárgreiðslu með góðum fyrirvara. „Á haustin, þegar krakkarnir eru búnir að velja fermingardaginn, panta þeir langoftast um leið tíma hjá okkur í fermingarklippingu og -greiðslu, enda veitir svo sannarlega ekki af.“

Meðvituð um tísku

Þegar styttist í fermingarnar byrjar svo fjörið fyrir alvöru á Hársögu, að sögn Sigrúnar. „Hálfum mánuði fyrir fermingu, eða um það bil, koma stelpurnar til okkar í prufugreiðslu. Það er nauðsynlegt fyrir þær, bæði til að fá góð ráð og sjá útkomuna, og mikilvægt fyrir okkur starfsfólkið að prófa greiðslurnar því það flýtir mjög fyrir þegar stóri dagurinn rennur loks upp.“

Aðspurð segir hún fermingarbörnin yfirleitt hafa mjög ákveðnar skoðanir á fermingarklippingunni og -greiðslunni. „Mér finnst þau almennt vera opin og meðvituð um tísku og þau vita langoftast mjög vel hvað þau vilja, það á jafnt við um stráka og stelpur. Það er ákaflega gaman að vinna þetta með þeim, ræða málin, spá og spekúlera.“

Sítt eftir fermingu

Einkennandi fyrir fermingarhártískuna hjá stúlkunum í ár eru mjög grófir liðir, þykkari og stærri fléttur en áður og vafningar, að sögn Sigrúnar. „Hártískan hjá stelpunum er að vissu leyti undir áhrifum frá hippatímabilinu. Hárskraut er vinsælt eins og áður; lifandi blóm, blómakransar og fíngerðar perluspangir. Hjá strákunum eru skýrar línur. Hárið er klippt snöggt í hliðum og ýmist greitt beint upp með lyftingu eða tekið vel til hliðar með geli.“

Hún segir fermingarstúlkurnar nær allar skarta síðu hári og þannig hafi það raunar verið lengi. „Það heyrir til undantekninga ef fermingarstelpa með sítt hár sest í stólinn og biður um að vera klippt stutt. Ég held þá að mér hafi misheyrst. Stelpurnar safna hári fram að fermingu, það er ekkert nýtt. Það sem hefur breyst er að hér áður fyrr létu þær síða hárið oft fjúka eftir ferminguna en núna halda þær miklu frekar síða hárinu, eða þannig hefur það að minnsta kosti verið síðustu árin.“

Sportlegt í sumar

Spurð nánar út í vor- og sumarhártískuna, bæði hjá konum og körlum, segir Sigrún línur og liti lofa góðu. „Öll vörumerki í hársnyrtigeiranum kynna sína sumarlínu í mars eða apríl og það er alltaf mikið tilhlökkunarefni að sjá það nýjasta frá þeim.

Kvenhártískan í sumar er afar spennandi. Stutt hár og sportlegt verður mjög áberandi og náttúrulegt útlit allsráðandi. Margar stórstjörnur hafa ákveðið að fórna síðu lokkunum og skarta stuttu hári, þar á meðal söngkonan Beyoncé. Stjörnurnar hafa mikil áhrif í tískuheiminum og ef þær þora að láta klippa hárið stutt þá þora fleiri að stíga það stóra skref.

Bob-línan verður áfram en nú er hárið styttra í hnakkann og síðara að framan og skipt í miðju; annars verða toppar líka áberandi í sumartískunni. Sea Salt-sprey er vinsælt í sumar, það er notað til að ýfa upp hárið og gefur sportlegt útlit og er nú fáanlegt í öllum helstu hártískumerkjum.

Áhrif frá Mílanó

Herratískan í sumar er sömuleiðis fjölbreytt. Skarpar línur verða áberandi, þar sem hárið er rakað í hliðum og létt að ofan þannig að það lyftist vel upp. Jafnframt verður vinsælt að halda hárinu síðara í hliðum og leyfa því að lyftast vel upp frá enni með geli.“

Sigrún sækir að sögn hártískusýningar og námskeið hér heima og erlendis, bæði á vorin og haustin. „Ég horfi fyrst og fremst til Mílanó þar sem helstu tískuhönnuðir eru starfandi. Það er nauðsynlegt fyrir mig að fylgjast vel með því sem er að gerast úti í heimi, sækja spennandi námskeið, fá hugmyndir og útfæra minn eigin stíl.“

Hármódel

Herraskyrtur: SKYRTA

Kjólar: Öxney

Blóm: Blómagallerí

Förðun: Eik Gísladóttir

beggo@mbl.is