Katrín Ómarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir, leikmaður enska meistaraliðsins Liverpool, mun ekkert leika með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í Algarve-bikarnum í Portúgal.

Katrín Ómarsdóttir, leikmaður enska meistaraliðsins Liverpool, mun ekkert leika með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í Algarve-bikarnum í Portúgal. Katrín hefur ekki jafnað sig eftir höfuðhögg sem hún fékk í leik með Liverpool og á vef KSÍ segir að í samráði við lækna hefði verið ákveðið að hún myndi ekkert spila á mótinu. Guðrún Arnardóttir úr Breiðabliki hefur verið kölluð inní hópinn í hennar stað. Hún verður ekki komin fyrir leikinn gegn Noregi í dag en liðin mætast kl. 18. vs@mbl.is