Fylltir ostar
Sniðugar hugmyndir að fylltum ostum til að nota við ýmis tækifæri.Aðferð:
Gullostur fylltur með rommlegnum rúsínum, þurrkuðum apríkósum og sultuðum fíkjum. Síðan er sætu apríkósumauki smurt yfir ostinn.
Stóri-Dímon fylltur með fersku basil, grilluðu eggaldini og ofn- eða sólþurrkuðum tómötum. Pinnum með ferskum tómötum, basil og steyptum ítölskum osti er síðan stungið ofan í ostinn.
Dala-brie með gráðaostafyllingu, þ.e. 2 msk. af stöppuðum gráðaosti ásamt 2 msk. af mascarpone-osti. Skreytið ostinn með pekanhnetum og hellið síðan hunangi yfir.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Litlar samlokur í veisluna
Aðferð:Hér má sjá hugmyndir að áleggi á sniðugar litlar samlokur sem henta vel í ýmsar veislur.
Með bræddum Óðalsosti, skinku, sætu sinnepi, basil og papriku.
Með bláum Höfðingja, eggaldini og hráskinku, sýrðum rjóma og basil.
Með heitum camembert, hálfum rauðum vínberjum, fínsöxuðu rós-maríni og svörtum pipar.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Brauðsnittur (bruschetta) með mozzarella, tómötum og sólþurrkuðum tómötum.
mozzarellaostur
rjómaostur með svörtum pipar
tómatar
sólþurrkaðir tómatar
Aðferð:
Skerið snittubrauð í sneiðar og bakið sneiðarnar við 180°C í nokkrar mínútur eða svo þær verði stökkar. Smyrjið sneiðarnar með rjómaostinum og setjið sneið af tómat þar ofan á. Því næst sneið af mozzarella og svo þar ofan á sneið af sólþurrkuðum tómat.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson.
Brauðsnittur (bruschetta) með rækjum og kotasæludressingu með avókadó
rækjur
Dressing – innihald:
rifin piparrót eftir smekk
salt og nýmalaður svartur pipar
2 stk avókadó
1 msk sítrónusafi
300 g kotasæla
2 tsk dijonsinnep
Aðferð:
Skerið avókadóið í tvennt og fjarlægið steininn, takið kjötið úr berkinum og saxið eða stappið saman með 1 msk af sítrónusafa. Blandið saman við kotasæluna ásamt dijonsinnepi og piparrót og hrærið vel saman. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Brauðsnittur (bruschetta) með sætu mangói og bökuðum gullosti
sweet mangó chutney
Gullostur
Aðferð:
Skerið snittubrauðið í sneiðar og bakið sneiðarnar við 180°C í nokkrar mínútur eða svo þær verði stökkar. Smyrjið sneiðarnar með sweet mangó chutney og setjið sneið af gullosti þar ofan á. Bakið snittuna í 2-3 mín á 180°C eða þar til osturinn hefur bráðnað aðeins.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Hráskinka með mozzarellaosti og hvítlauksrjómaosti
Forréttur fyrir 6 eða sem hluti af hlaðborði
6 sneiðar hráskinka
1 stór kúla mozzarellaostur
50 g hvítlauksrjómaostur
Aðferð:
Skerið mozzarellakúluna í sex bita. Setjið klípu af hvítlauksrjómaostinum á hverja sneið af parmaskinkunni. Bætið klettasalati á hverja sneið af hráskinku ásamt bita af mozzarellakúlunni, rúllið sneiðinni upp. Gott sem léttur forréttur eða hluti af hlaðborði.
Gott er að skera rúllurnar í tvo bita ef þetta á að vera hluti af hlaðborði, jafnvel að stinga í tannstöngli.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Kjúklingaspjót með sveppaostasalati
125 g rjómaostur með hvítlauk
2 dl ab-mjólk
1 tsk rósmarín
1 tsk malaðaður svartur pipar
Salat – innihald:
500 g blandaðir sveppir
200 g rauðlaukur
100 g vorlaukur
150 g villisveppaostur
4 msk ólífuolía
1 stk hvítlauksgeiri
2 msk söxuð steinselja
1 msk saxað timjan
Aðferð:
Kjúklingur – aðferð: Skerið kjúklingabringurnar í strimla og marínerið í rjómaostsblöndunni. Setjið á spjót og bakið við 170°C í 12-15 mínútur.
Salat – aðferð: Skerið sveppina niður, ekki of smátt, og steikið á pönnu í 2 msk af ólífuolíunni, kælið síðan sveppina. Skerið laukana í bita ásamt villisveppaostinum, bætið saman við kælda sveppina, hrærið saman ólífuolíu, hvítlauk, steinselju og timjan, blandið saman við sveppablönduna.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Tortilla með klettasalati, fetaosti og rjómaosti
Úr þessu nást u.þ.b. 36 bitar, 6 bitar úr hverri rúllu
125 g rjómaostur
300 g fetaostur
70 g klettasalat (70-100 g)
Aðferð:
Hitið tortillurnar á pönnu svo það sé auðveldara að vinna með þær. Raðið á bretti eða borð. Smyrjið með rjómaosti, skiptið klettasalatinu og fetaostinum jafnt á milli. Rúlið þétt upp og kælið. Skerið í sneiðar og setjið sýrðan rjóma á toppinn.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
jonagnar@mbl.is