Aníta Hinriksdóttir
Aníta Hinriksdóttir
Aníta Hinriksdóttir mun meðal annars eiga í höggi við heimakonuna Zuzönu Hejnová, heimsmeistara í 400 metra grindahlaupi, um það að komast áfram úr undanriðlakeppninni í 800 metra hlaupi á EM í Prag kl. 11.15 í dag. Aníta er í 1.

Aníta Hinriksdóttir mun meðal annars eiga í höggi við heimakonuna Zuzönu Hejnová, heimsmeistara í 400 metra grindahlaupi, um það að komast áfram úr undanriðlakeppninni í 800 metra hlaupi á EM í Prag kl. 11.15 í dag. Aníta er í 1. riðli með pólskum, írskum, norskum og rússneskum keppendum. Rússinn er sú eina með betri tíma en Aníta í riðlinum, þó ekki á þessu ári. Tvær fljótustu í hverjum riðlanna fjögurra komast í undanúrslit og fjórar til viðbótar með bestu tíma þar á eftir. sindris@mbl.is