— Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Smekkleg förðun tilheyrir fermingardeginum og strákahljómsveitin One Direction er í dálæti hjá mörgum fermingarstúlkum. Nú má slá þessu tvennu saman – með förðunarvörunum frá One Direction, nema hvað.

Það er Ellen Engilberts sem sá um förðunina og hún leiðir lesendur í gegnum förðunarferlið, skref fyrir skref.

Húðin

„Byrjað var á að bera farðagrunninn Photo Finish Primer frá Smashbox, hann látinn þorna í örfáar sekúndur og þá var borið BB-krem í light frá Smashbox á allt andlitið.

Sólarpúður sett undir kinnbeinin og því næst var settur kinnalitur frá Smashbox til að ná fram frískleika.“

Augun

„Byrjað var að bera ljósasta augnskuggann, Back for You, úr förðunarsettinu frá One Direction á allt augnlokið, síðan var dökkbrúni augnskugginn, Little Things, notaður í skyggingu á ytri augnlok og ljósferskjulitaði Change My Mind notaður í efri skyggingu. Að lokum var brúni augnblýanturinn notaður til þess að gera eyeliner og maskarinn settur á augnhárin til þess að ramma inn augun.“

Varir

„Ljós-ferskjubleiki varaliturinn úr settinu var borinn á varirnar og glossinn að lokum borinn létt á miðjar varirnar.

Einföld og létt förðun sem sómir sér afar vel á hvaða fermingarstúlku sem er.“

Förðun: Ellen Engilberts

Módel:

Alexandra Friðfinnsdóttir

jonagnar@mbl.is