Vitor Ramil
Vitor Ramil
Gítarleikarinn og tónskáldið Vitor Ramil kemur fram á tónleikum í Mengi í kvöld kl. 21 og flytur lög af nýjustu plötu sinni, Foi no mês que vem .

Gítarleikarinn og tónskáldið Vitor Ramil kemur fram á tónleikum í Mengi í kvöld kl. 21 og flytur lög af nýjustu plötu sinni, Foi no mês que vem . Platan inniheldur 32 lög frá ýmsum tímum ferils hans og var gefin út í tilefni af bókaútgáfu með textum hans.

Kanadíska tvíeykið Nadja og Aidan Baker kemur fram á tónleikum annað kvöld. Nadja skipa þau Aidan Baker og Leah Buckareff en saman „búa þau til tilraunakenna ambienttónlist sem er mörgum landsmönnum vel kunn“.