Verðmæti Skyssur eftir Hergé á uppboði Sotheby's kosta glás.
Verðmæti Skyssur eftir Hergé á uppboði Sotheby's kosta glás.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Börnin nú til dags virðast stundum vera að drukkna í alls kyns leikföngum og tækjum. Það er af sem áður var þegar þótti framúrskarandi flott að fá eins og eitt reiðhjól í fermingargjöf, til að geta skotist á milli torfbæja.

Börnin nú til dags virðast stundum vera að drukkna í alls kyns leikföngum og tækjum. Það er af sem áður var þegar þótti framúrskarandi flott að fá eins og eitt reiðhjól í fermingargjöf, til að geta skotist á milli torfbæja.

En hvað á að gefa fermingarbarninu sem virðist ekki vanhaga um nokkurn hlut? Og gefum okkur um leið að sádi-arabískur olíufursti fáist til að taka þátt í að borga fyrir gjöfina, eða að Víkinga-lottómiðinn skili loksins fyrsta vinningi.

Sunreef 90 Ultimate

Öll fermingarbörn ættu að eiga snekkju. En snekkjur eru ekki allar skapaðar jafnar. Þessi forláta tvíbytna frá Sunreef er mikið meistaraverk hönnunar og tækni, gerð úr koltrefjum og sólarsellum. Er um að ræða seglbát, svo að ekki þarf að hafa of miklar áhyggjur af bensínreikningnum þegar litli ættarlaukurinn skellir sér í hringferð um Hvalfjörðinn.

Er svefnpláss fyrir marga gesti um borð og stofan rúmgóð. Fremst í snekkjunni er heitur pottur og nóg af góðum stöðum til að slaka á í sólbaði.

En hvers vegna tvíbytnu? spyrja lesendur eflaust. Jú, tvíbytnur hafa þann eiginleika að vera stöðugri á sjónum, vagga ekki svo mikið og ná meiri hraða.

Reikna má með að snekkjan myndi kosta á bilinu einn til tvo milljarða fullkláruð.

Rolls Royce Wraith

Fram að bílprófi kalla unglingsárin á mikið skutl. Ef illa gengur að finna tíma fyrir allt skutlið er upplagt að gefa fermingarbarninu Rolls Royce Wraith. Þannig er tryggt að röð sjálfboðaliða bíði fyrir framan húsið, í þeirri von að fá náðarsamlegast að setjast undir stýrið á þessum eðalvagni, til að koma ungmenninu á fótboltaæfingu eða í tónlistarskólann.

Wraith er sportlegasti bílinn í Rolls Royce-línunni, en mikill dreki á veginum og klassískur í bak og fyrir. Meðal sérkenna eru hurðirnar sem opnast „öfugum megin“. Þá má vitaskuld panta útgáfu með nuddsætum og kæli fyrir kampavín.

Wraith kostar frá um 40 milljónum vestanhafs, en er væntanlega mun dýrari þegar búið er að bæta við aukabúnaði og flytja drossíuna til landsins.

Handteiknaður Tinni

Er ekki ungt fólk hrifið af myndasögum? Og eru ekki sögurnar um Tinna heimsbókmenntir? Þeir sem segja já við báðum spurningum ættu að skoða uppboð Sotheby's í París 7. mars, en þar verða seldir munir tengdir teiknimyndasagnagerð. Einn verðmætasti munurinn á uppboðinu er skissa eftir Hergé, af forsíðukápu. Er matsverðið á bilinu 450.000 til 480.000 evrur.

ai@mbl.is