Ég stofnaði Sætar syndir vegna þess að þegar sonur minn fæddist þá vaknaði hjá mér mikill áhugi á kökuskreytingum, sérstaklega í tengslum við afmælin hans,“ útskýrir Eva María Hallgrímsdóttir, stofnandi og eigandi fyrirtækisins. „Með tímanum urðu kökurnar alltaf flóknari og viðameiri hjá mér ásamt því að hæfileikar mínar á þessu sviði jukust.“ Í dag er svo komið að Sætar syndir geta státað af því að vera eina fyrirtækið sem er með matvælavottað eldhús og selur kökur skreyttar með sykurmassa, fyrir utan bakarí og konditorí.
„Hjá fyrirtækinu starfa snillingar í skreytingagerð sem hafa gert fyrirtækinu kleift að vaxa og dafna frá upphafi og gaman að segja frá því að það eru enn skemmtilegri tímar framundan hjá Sætum syndum,“ bætir Eva María við.
Skreytum eftir óskum
Að sögn Evu Maríu felst sérstaða Sætra synda ekki síst í því að allar kökurnar eru gerðar eftir óskum hvers og eins og því er úrvalið endalaust. „Við notumst eingöngu við hágæða hráefni og við státum af því að selja kökur sem eru í senn sérlega fallegar og dásamlega bragðgóðar. Við útbúum og skreytum allar kökur í samræmi við óskir fermingarbarnsins. Það getur til dæmis átt við litavalið á kökunni svo hún sé í stíl við aðrar skreytingar og litaþemað í veislunni. Oft er kakan mótuð og skreytt út frá áhugamáli eða þeim tómstundum sem fermingarbarnið stundar; svo sem ákveðið boltalið, dans og dansskór, tónlist, málningardót eða klæðaburður.“
Súkkulaði og fótboltatreyjur
Aðspurð segir Eva María að fótboltatreyjur séu sérlega vinsælar um þessar mundir sem og stílhreinar rósakökur, enda sé það svo að einfaldleikinn sé oft fallegastur. „Frozen-æðið hefur verið yfirgnæfandi síðustu mánuði hjá yngri kynslóðinni í afmælum. Súkkulaðikökur seljast alltaf vel enda er það bragð sem flestir vilja og við bjóðum upp á 4 mismunandi fyllingar á kökum en það er líka alltaf hægt að koma með séróskir og við skoðum það hverju sinni. Vinsælasta fyllingin hjá okkur er hrikalega góð frönsk súkkulaðikaka með sérstakri karamellu sem við búum til.“
Litríkar fermingarkökur
Það má því með sanni segja að möguleikarnir séu nánast óþrjótandi og útfærslurnar jafn margar og fermingarbörnin þegar allt kemur til alls. „Það er voða vinsælt að fá litríkar kökur á 3-4 hæðum en þar sem hver kaka er mótuð og skreytt út frá hverju fermingarbarni fyrir sig þá eru í raun engar ákveðnar útfærslur vinsælli en aðrar. Litli frændi minn er til dæmis að fermast í vor og langar hann að hafa fermingarkökuna sína eins og skyrtu með bindi og handlóð í kring þar sem það að lyfta lóðum er hans áhugamál. Fermingarkökurnar taka mið af þeim sem fermist hverju sinni og þannig finnst okkar það eiga að vera.“jonagnar@mbl.is