Strákarnir láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að klæða sig upp á fermingardaginn enda tilefnið til betri fata ærið. Við fengum Róbert Róbertsson, verslunarstjóra hjá Selected í Smáralind, til að stilla upp þremur mismunandi herrasamsetningum sem hver einasti fermingardrengur væri fullsæmdur af.
Vor- og sumartískan hjá okkur er mjög mikið með alls konar munstur á flíkunum. Blóma-, randa-, galla- og doppumynstur eru mjög áberandi,“ segir Róbert þegar hann er inntur eftir einkennum línunnar fyrir sumarið hjá Selected.
„Sniðin eru farin að vera þrengri. Skinny-fit-buxur og aðsniðnar flíkur eru einkennandi í vor. Litir sem eru mjög áberandi eru ljósblár, pastel-rauður, hvítur og ljósgrár og svo loks indigo-blár.“
Indigo-blár er málið í sumar
Róbert bætir því við að vor/sumarlínan sæki innblástur aðallega í téðan gallabuxnalit – hinn djúpbláa indigo. „Línan inniheldur nefnilega mikið af flíkum sem hægt er klæða við gallabuxur og þennan „casual“ stíl sem höfðar til flestra. Það má segja að línan hverfist um þennan dökkbláa indigo-lit og gangi í aðalatriðum út á hluti sem fara vel með gallabuxum og liti sem passa með indigo-bláum. Línan er því bæði stílhrein og afslöppuð í senn.“Að venju er jakkinn þungamiðja spariklæðnaðarins hjá herrunum. Eina spurningin er – hvort er hann vinsælli sem stakur jakki á móti annars konar buxum eða sem helmingur af jakkafötum?
„Jakkafötin virðast vera vinsælli þetta árið,“ segir Róbert. „Sniðin eru farin að vera þrengri og aðsniðnari hjá okkur, sem er einmitt það sem klæðir þennan aldur svo vel. Stakur blazer-jakki, hvít skyrta og svartar þröngar gallabuxur er líka samsetning sem þeir eru mjög spenntir fyrir.“
Og punkturinn yfir i-ið?
„Slaufur eru vinsælastar í ár sem fullkomna stílinn með jakkafötum eða stökum blazer og skyrtu.“
jonagnar@mbl.is