Ekkert barn fæddist hér á landi á meðan sólmyrkvinn stóð yfir í gærmorgun, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Ekkert barn fæddist hér á landi á meðan sólmyrkvinn stóð yfir í gærmorgun, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

„Það kom eitt barn í heiminn upp úr klukkan átta og svo annað núna klukkan eitt, en ekkert þar á milli,“ sagði læknir á vakt á fæðingardeild Landspítalans í samtali við mbl.is. Það sama var uppi á teningnum í höfuðstað Norðurlands en þar horfði fólk til himins.

„Hér var allt með kyrrum kjörum og starfsfólkið stóð bara úti á svölum og naut sólmyrkvans. Við fengum hér æðislegt útsýni,“ sagði læknir á vakt á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri.