Björn Zoëga
Björn Zoëga
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað verkefnastjórn um betri heilbrigðisþjónustu.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað verkefnastjórn um betri heilbrigðisþjónustu. Verkefnastjórninni er ætlað að vinna á grundvelli yfirlýsingar forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, heilbrigðisráðherra, Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands frá 8. janúar sl.

Er Björn Zoëga, bæklunarlæknir og fyrrverandi forstjóri Landspítalans, formaður stjórnarinnar.

Verkefnisstjórnin, mun taka við stjórn verkefnisins Betri heilbrigðisþjónusta 2013-2017 sem heilbrigðisráðherra setti af stað í upphafi síðasta árs. Gert er ráð fyrir að verkefnastjórnin ljúki vinnu í árslok.