Atkvæðagreiðslu Félags íslenskra leikara um aðgerðir hjá ríkinu lauk í gær. Af þeim sem greiddu atkvæði samþykktu 96% tímabundið verkfall fimmtudaginn 9. apríl.
Atkvæðagreiðslu Félags íslenskra leikara um aðgerðir hjá ríkinu lauk í gær. Af þeim sem greiddu atkvæði samþykktu 96% tímabundið verkfall fimmtudaginn 9. apríl. Félagið bætist því við þau 17 aðildarfélög BHM sem þegar hafa samþykkt að boða til verkfalla eftir páska.