21. mars 1881 Frost á Akureyri mældist 32 stig á Réaumur-mæli (40 stig á Celsíusmæli), en það var mesta frost sem þar hafði orðið þennan mikla frostavetur. Metið er ekki viðurkennt. 21.
21. mars 1881
Frost á Akureyri mældist 32 stig á Réaumur-mæli (40 stig á Celsíusmæli), en það var mesta frost sem þar hafði orðið þennan mikla frostavetur. Metið er ekki viðurkennt.
21. mars 1968
Snjódýpt í Vestmannaeyjum var 90 sentimetrar, sem mun vera einsdæmi. Hitamælirinn á Stórhöfða fór á kaf. Fólk þurfti víða að fara út um glugga á íbúðarhúsum og björgunarsveitir grófu eitt hús upp, en í því bjuggu eldri hjón.
21. mars 1974
Undirskriftir 55.522 Íslendinga voru afhentar forseta sameinaðs Alþingis þar sem varað var við uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin. Þetta var stærsta undirskriftasöfnunin hérlendis og var hún nefnd Varið land.
21. mars 1982
Fjarhitun Vestmannaeyja var formlega tekin í notkun, en það var fyrsta hraunhitaveitan í heiminum.Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson