Árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, hófst formlega í dag og stendur yfir til 19. apríl. Þetta er 18. árið sem þessi söfnun fer fram.
Söfnunin hófst á Bessastöðum þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti fyrstu framlögin í bauka hjá nemendum úr 5. bekk Fossvogsskóla. Átakið er unnið í samstarfi við grunnskóla landsins. Börnum er úthlutað götum í sínu skólahverfi þar sem þau ganga í hús tvö og tvö saman og safna í söfnunarbauka.
Í ár verður safnað fyrir öðrum áfanga byggingu skóla og heimavistar fyrir ABC starfið í Nairobi í Kenía. Grunnur að fyrstu hæð var lagður eftir söfnunina Börn hjálpa börnum árið 2013 og var fyrsta hæðin byggð í fyrra fyrir söfnunarféð með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu. Í ár verður safnað fyrir annarri hæð sömu skólabyggingar sömuleiðis með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu.
Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið er bent á reikningsnúmer: 515-14-110000. Kt.: 690688-1589.