Vigdís Finnbogadóttir
Vigdís Finnbogadóttir
Sýningin Ertu tilbúin frú forseti? sem lauk fyrir skömmu í Hönnunarsafni Íslands, hefur verið sett upp í Minjasafninu á Akureyri og verður opnuð í dag kl. 14.
Sýningin Ertu tilbúin frú forseti? sem lauk fyrir skömmu í Hönnunarsafni Íslands, hefur verið sett upp í Minjasafninu á Akureyri og verður opnuð í dag kl. 14. Á sýningunni er varpað ljósi á margþætt verkefni Vigdísar Finnbogadóttur í forsetatíð hennar og fatnaður og ýmsir fylgihlutir Vigdísar leiða gesti inn í veröld þjóðarleiðtoga, fyrirmennna og embættismanna ýmissa ríkja, eins og því er lýst í tilkynningu.