Ögurkirkja í Ögurvík.
Ögurkirkja í Ögurvík. — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Orð dagsins: Gabríel engill sendur.
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Suðurhlíðarskóli sér um guðsþjónustuna. Barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.

AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta laugardag kl. 12. Bein útsending frá Reykjavíkursöfnuði.

AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðsvallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurannsókn laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.

AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum | Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Iain Matchett.

AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi 67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. Barna- og unglingastarf.

AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laugardag kl. 11. Ræðumaður: Stefán Rafn Stefánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.

AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1, Kópavogi. Biblíufræðsla, söngur og bæn.

ÁRBÆJARKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30 og 13.30. Prestar: Þór Hauksson og Kristín Pálsdóttir. Kristina K. Szklanár organisti og kórstjóri. Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöngva. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 11 í umsjá Fritz og Valla.

ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari, og sunnudagaskólinn er í höndum Viðars Stefánssonar guðfræðings. Kammerkór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi að messu lokinni.

ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra. Fulltrúar Gídeonfélagsins kynna starf samtakanna. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson. Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli á sama tíma. Þar er gulur dagur í aðdraganda páska. Hólmfríður S. Jónsdóttir og Bryndís Svavarsdóttir annast fræðslu og leiða söng. Hressing og samfélag á eftir. Aðalsafnaðarfundur á eftir messu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.

BESSASTAÐAKIRKJA | Ferming kl. 13. Margrét Gunnarsdóttir djákni og Hans Guðberg Alfreðsson prestur þjóna fyrir altari. Álftaneskórinn leiðir söng undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista.

BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Fjóla Guðnadóttir og sr. Hans Guðberg.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Steinunnar Þorbergsdóttur. Messa kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Hressing í safnaðarheimili á eftir.

DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Magnús Björn Björnsson. Um söng og undirspil sjá Ávextir andans. Súpa í safnaðarsal að athöfn lokinni.

Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.

DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Fræðandi og skemmtilegt barnastarf á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.

FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta. Prestur Guðmundur K. Ágústsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner. Á sama tíma sunnudagaskólinn í umsjá Péturs og Hreins. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.

FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin síkáta leiðir sönginn að vanda.

FRÍKIRKJAN Kefas | Í dag verður sunnudagaskóli kl. 11 þar sem fræðsla dagsins fjallar um atburðina á skírdag. Mikill söngur, teiknimynd, leikrit og fleira á dagskrá. Hressing í lok stundar.

FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur þjónar fyrir altari. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarbarn dagsins er Hekla Kristín Sigurðardóttir, Frostafold 181, 112 Reykjavík.

GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Sunnudagaskóli kl. 11. Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni leiðir ásamt leiðtogum. Sameiginlegt upphaf í messu.

GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Séra Vigfús Þór Árnason og séra Sigurður Grétar Helgason. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson. Ferming kl. 13.30. Séra Vigfús Þór Árnason og séra Guðrún Karls Helgudóttir. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon Leifsson.

GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Guðsþjónusta kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Organisti: Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson.

GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl 11. í umsjá Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Karlakór KFUM syngur undir stjórn Laufeyjar Geirlaugsdóttur. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist.

GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í umsjá Félags fyrrum þjónandi presta í hátíðasal klukkan 14. Séra Gunnar Björnsson þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista.

GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur Karl V. Matthíasson. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Ásbjargar Jónsdóttur. Barn verður borið til skírnar í messunni. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs. Sunnudagaskóli kl. 11 í Hásölum Strandbergs, safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju. Leiðtogi barnastarfs er Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar er Margrét Heba. Kaffi og kex á eftir. Miðvikudagur 25. mars – morgunmessa kl. 8.15. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs. Morgunverður í Odda á eftir. Síðasta morgunmessa vetrarins.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og kveður Hallgrímssöfnuð. Sr. María Ágústsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukórinn syngur ásamt drengjakór frá Boston. Stjórnandi er Hörður Áskelsson, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Ingu Harðardóttur.

HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Ásu Valgerðar Sigurðardóttur og Berglindar Björgúlfsdóttur syngur. Organisti Kári Allansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Kvöldmessa kl. 20. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, setur sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur inn í embætti prófasts í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Organisti Kári Allansson. Veitingar að athöfn lokinni.

Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta í Hátúni 12 Betri Stofu kl. 13. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og prédikar, meðhjálpari er Kristinn Guðmundsson. Arngerður María Árnadóttir leiðir söng.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Umsjón: Karlahópur kirkjunnar og sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Þorvaldur Halldórsson leiðir söng og leikur undir. Að messu lokinni býður hópurinn í kirkjukaffi. Í messunni mun Ágúst Thorstensen flytja smásöguna Áttavitinn, Júlíus Ólafsson flytur hugvekju, Guðbrandur Jónasson segir frá starfi hópsins, Þorfinnur Ísleifsson og Þór Arnarson lesa ritningarlestra, Björn Hólm og Kristján Þór Gunnarsson flytja bænir. Sunnudagaskóli kl. 13.

HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Messa kl. 11. Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, kór Hólaneskirkju sér um sönginn. Meðhjálpari Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Eftir messu er súpuveisla í Borginni og er það liður í fjáröflun kórsins vegna Kanadaferðar í sumar. Á staðnum verða einnig seldir fagrir munir.

HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjónusta kl. 13.30. Kirkjukórinn syngur, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Prestur Þorvaldur Karl Helgason.

HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Kl. 11 samkoma. Ræðumaður er Kristín Jóna Kristjónsdóttir. Þema marsmánaðar er „Ég er“. Efni ræðunnar að þessu sinni er: Ég er upprisan og lífið. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Kl. 14 samkoma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni. English speaking service.

ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Unnar Erlingsson predikar. Barnastarf á sama tíma í aldurskiptum hópum. Kaffi eftir stundina

KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Baldvin Ingvason, félagar úr kirkjukór Keflavíkur leiða söng. Barnastarf á sama tíma. Stund í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja í tilefni af Mottumars kl. 20. Prestar Sigfús Baldvin Ingvason og Sigurður Grétar Sigurðsson. Karlkyns félagar úr kór Keflavíkurkirkju leiða söng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Kl. 19 Stoppleikhúsið flytur sögu Hallgríms Péturssonar 26. mars kl. 19. 500 kr. aðgangseyrir. Uppl. gefur sr. Erla Guðmundsdóttir.

KÓPAVOGSKIRKJA | Ferming kl. 11 Sr. Sigurður Arnarson sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir djákni prédika og þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu Borgum og hefst kl. 11. Umsjón hafa Bjarmi Hreinsson og Oddur Örn Ólafsson.

LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Jóhanna Gísladóttir æskulýðsfulltrúi og Snævar Andrésson guðfræðinemi sjá um guðsþjónustuna ásamt messuþjónum og kirkjuverði. Kór Vogaskóla syngur undir stjórn Jóhönnu Sigríðar Halldórsdóttur. Organisti er Jón Stefánsson. Kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu eftir guðsþjónustu og páskabingó. Tónleikar Gradueli Nobili kl. 17. Miðasala við innganginn.

LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Kristín Þórunn prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. Tónlistin er í höndum Arngerðar Maríu tónlistarstjóra og Nathalíu Druzin Halldórsdóttur söngkonu. Í tilefni dagsins hlýðum við á nokkrar perlur tónbókmenntanna sem eru helgaðar Maríu Guðsmóður, s.s. Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, Ave María eftir Schubert og Ave María eftir Caccini. Kaffi og djús eftir samveru.

LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 og 13.30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson. Hægt er að nálgast lista yfir fermingarathafnir þessa vors

á heimasíðu kirkjunnar: www.lagafellskirkja.is

LINDAKIRKJA í Kópavogi | Laugardagur 21. mars: Ferming 10.30 og 13.30. Sunnudagur 22. mars: Sunnudagaskóli í Lindakirkju og í Boðaþingi kl. 11. Ferming kl. 13.30. Guðsþjónusta í Lindakirkju kl. 20. Hljómsveitin Sálmari leiðir tónlistina, flutt verður kynning á starfi KFUM og K og lesarar verða úr hópi leiðtoga í KFUM og K deildum Lindakirkju. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.

Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar: Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnudagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl. 11. Barnamessa (september-maí) kl. 12.15.

Mosfellskirkja í Grímnesi | Föstumessa miðvikudagskvöld 25. mars kl. 20.30. Egill Hallgrímsson sóknarprestur og Kristján Valur Ingólfsson Skálholtsbiskup annast prestsþjónustuna.

NESKIRKJA | Messa, barnastarf og kirkjukaffi kl. 11. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Hljómur, kór eldri borgara, syngur. Barnastarfið er í höndum sr. Sigurvins Lárusar Jónssonar, Katrínar og Ara. Kaffisopi og samfélag á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fermingarmessa kl. 14. Fermd verða: Hrefna Rós Hrannarsdóttir, Rauðagerði 58. 108 Reykjavík. María Káradóttir, Þórsgötu 18a, 101 Reykjavík. Rakel Ósk Sigurðardóttir, Fífulind 1, 201 Kópavogi. Sara Guðnadóttir, Gnípuheiði 1, 200 Kópavogi. Una Mist Óðinsdóttir, Akurgerði 5, 108 Reykjavík. Séra Pétur Þorsteinsson sér um athöfnina. Barnastarfið verður á sama tíma. www.ohadisofnudurinn.is

SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. „Hin endanlega fórn og hin endanlega fyrirgefning.“ Ræðumaður Haraldur Jóhannsson. Túlkað á ensku. Sunnudagaskóli fyrir börnin.

SELFOSSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Umsjón með barnastarfi hefur Hugrún Kristín Helgadóttir æskulýðsfulltrúi. Kirkjukórinn syngur, organisti Jörg Sondermann. Prestur Þorvaldur Karl Helgason. Kaffisopi eftir messu og súpa og brauð á vægu verði.

SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta í safnaðarsalnum kl. 11. Perla Magnúsdóttir leiðir samveruna. Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar í athöfnunum, Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel og Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Nöfn fermingarbarna má finna á vef kirkjunnar seljakirkja.is

SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Efni prédikunar er María mey. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar fyrir altari. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar. I anddyri kirkjunnar er sýning um Maríu mey.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.

VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fermingarmessa kl. 10.30. Kór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar. Halldór Reynisson þjónar.

YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fermingarmessa Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 10.30. Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista. Meðhjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir. Sunnudagaskóli í Njarðvíkurkirkju kl. 11 í umsjá Maríu, Péturs og Heiðars.

ÞORLÁKSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 13.30.

(Lúk. 1)

(Lúk. 1)