[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Agnes Bragadóttir agnes@mbl.

Fréttaskýring

Agnes Bragadóttir

agnes@mbl.is

Það eru engar ýkjur að segja að innviðir Samfylkingarinnar hafi leikið á reiðiskjálfi þegar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þriðji þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, tilkynnti, mörgum að óvörum, framboð sitt til formanns síðdegis í fyrradag.

En svo virðist sem einhverjum viðmælendum blaðamanns úr röðum Samfylkingarinnar í gær hafi ekki komið framboðið mikið á óvart og ekki heldur hin síðbúna tímasetning á því að tilkynna framboðið. Segja þeir augljós fingraför Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, vera á framboði Sigríðar Ingibjargar.

Einungis landsfundarfulltrúar

Formannskjör í Samfylkingunni hefur hingað til farið fram þannig að allir félagsmenn höfðu kosningarétt í allsherjaratkvæðagreiðslu, en í formannskjörinu í gær, voru það einungis kjörnir landsfundarfulltrúar, eitthvað í kringum 800 talsins, sem gátu kosið.

Kosningaþátttaka hefur frá stofnun flokksins fyrir 15 árum verið misjöfn.

Karl Th. Birgisson, ritstjóri veftímaritsins Herðubreiðar, rifjar upp kosningaþátttöku félaga í pistli á heimasíðu tímaritsins í gær:

„Össur Skarphéðinsson var kjörinn fyrsti formaður flokksins í almennri atkvæðagreiðslu og tóku um 4.500 manns þátt.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir felldi Össur í formannskjöri árið 2005 og voru þá greidd um tólf þúsund atkvæði.

Jóhanna Sigurðardóttir fékk ekki mótframboð og var sjálfkjörin 2009 og 2011.

Loks sigraði Árni Páll Árnason í formannskjöri árið 2013. Þá greiddu um 5.500 almennir flokksmenn atkvæði.“

Kosningarétt hafa landsfundarfulltrúar sem greitt hafa landsfundargjald, 5.900 kr.

Árni Páll sagður gáttaður

Karl Th. segir ennfremur:

„Óhætt er að segja að tilkynning Sigríðar Ingibjargar í gær hafi komið á óvart og valdið nokkru uppnámi í flokknum. Herðubreið hefur heimildir fyrir því að í aðdraganda landsfundar hafi fjölmargir afþakkað boð um að vera landsfundarfulltrúar þar sem ekki hafi stefnt í meiri háttar kosningar á þinginu, hvað þá formannskjör. Þeir hinir sömu eru afar ósáttir við að nú stefni í formannskjör þar sem þeir hafa ekki tækifæri til að greiða atkvæði.

Í fyrsta sinn í sögu flokksins eru það því fáein hundruð manna, en ekki mörg þúsund, sem geta greitt atkvæði í formannskjöri. Og atkvæðisrétturinn kostar 5.900 krónur.“

Í samtölum blaðamanns við samfylkingarfólk í gær, bæði þingmenn og óbreytta, kom fram að framboð Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur virðist hafa komið langflestum algjörlega í opna skjöldu. Því var einnig haldið fram að framboð hennar hefði komið Árna Páli mest á óvart – hann hefði bókstaflega verið gáttaður, enda tilkynnti Sigríður Ingibjörg ekki framboð sitt fyrr en réttum sólarhring áður en formannskjör hófst, um kl. 17.30 í fyrradag.

Árni Páll var rétt búinn að frétta af mótframboðinu þegar frétt um það kom í fréttum Ríkisútvarpsins kl. 18 í fyrradag og engum duldist, sem horfðu á sjónvarpsfréttir RÚV kl. 22 í fyrrakvöld, að Árni Páll var þykkjuþungur, svo ekki sé meira sagt.

Reyndir, pólitískir refir

En svo eru það gamlir, reyndir, pólitískir refir, ekki síst úr Alþýðuflokknum sáluga, en einnig úr gamla Alþýðubandalaginu, sem hafa sínar kenningar um það hvers vegna Sigríður Ingibjörg bauð sig fram og hvers vegna hún gerði það jafn seint og raun bar vitni.

Sparkað úr ríkisstjórn

Þeir minna á að í forsætisráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur hafi Árni Páll verið eini ráðherrann úr röðum Samfylkingarinnar sem að einhverju marki stóð uppi í hárinu á henni og uppskar spark úr ríkisstjórn sem þau Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir hafi ákveðið í sameiningu.

Þá hafi það aldrei verið neitt leyndarmál að í formannskjörinu 2013 hafi Jóhanna barist með kjafti og klóm gegn því að Árni Páll væri kjörinn formaður flokksins. Guðbjartur Hannesson hafi verið hennar kandídat. Lyktir urðu þær að Árni Páll hlaut 61,8% atkvæða og Guðbjartur fékk 37,6% atkvæða og um 5.500 manns tóku þátt í formannskjörinu.

Jóhanna hafi einfaldlega áttað sig á því að nú væri lag, fyrst aðeins landsfundarfulltrúar, um 800 manns, hefðu kosningarétt, til þess að losna við Árna Pál og velta honum úr sessi og því hafi hún og hennar helstu stuðningsmenn þrýst á og hvatt Sigríði Ingibjörgu til þess að fara gegn Árna Páli.

Tímasetningin lykilatriði

Í þeim efnum hafi verið lykilatriði að mótframboðið kæmi fram á síðustu stundu þegar sá tími væri útrunninn að tilkynna sig sem landsfundarfulltrúa og greiða 5.900 króna þátttökugjaldið.

Sennilega hafi einhver hópur stuðningsmanna Árna Páls, í þeirri trú að enginn byði sig fram gegn honum og hann yrði sjálfkjörinn, ákveðið að afþakka boð um að vera landsfundarfulltrúar. Þannig sé mjög líklegt að fylkingar hafi riðlast og fleiri úr stuðningsmannaliði Jóhönnu en Árna Páls hafi mætt til landsfundar.