[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Hún var skrýtin stemningin í Súlnasal í gærkvöldi eftir að Árni Páll Árnason var kjörinn formaður Samfylkingarinnar. Gleði og samstaða eru ekki orð sem koma upp í huga manns. Langt frá því.

Baksvið

Benedikt Bóas

benedikt@mbl.is

Hún var skrýtin stemningin í Súlnasal í gærkvöldi eftir að Árni Páll Árnason var kjörinn formaður Samfylkingarinnar. Gleði og samstaða eru ekki orð sem koma upp í huga manns. Langt frá því.

Kosið var með rafrænum hætti og átti því ekki að þurfa að bíða lengi eftir úrslitunum. Þau voru boðuð um kl. 18:45.

Stöð 2 og RÚV ætluðu að sýna niðurstöðuna í beinni útsendingu og tjölduðu miklu til. Þegar klukkan sló sjö var ljóst að úrslitin væru ekki á leiðinni í hús og fundargestir voru farnir að ókyrrast. Mínúturnar liðu og loks steig formaður kjörstjórnar, Jón Ingi Cæsarsson, í pontu um kl. hálfátta. Tilkynnti að það væru fimm mínútur í að úrslitin yrðu tilkynnt – það þyrfti að koma veðurfréttum að á RÚV. Af líkamstjáningu hans mátti greina að tíðinda var að vænta.

Salurinn gapti af undrun

Flestir voru búnir að reikna með Árna Páli í formannsembættið enda hafði Sigríður háð örkosningabaráttu sem stóð í minna en sólarhring. En annað kom á daginn.

Fyrst var lesið upp nafn Önnu Pálu Sverrisdóttur sem hafði fengið eitt atkvæði. Salurinn hló og klappaði fyrir henni. Gleðin var allsráðandi.

Svo kom nafn Árna Páls upp. 49,49% atkvæða hafði hann fengið. Salurinn gapti af undrun. Nafn Sigríðar kom næst. 49,28% hafði hún fengið og þögn sló á salinn sem rankaði ekki við sér fyrr en tilkynnt var að Árni Páll væri áfram formaður. Þá var klappað og staðið upp. Árni hafði hlotið 241 atkvæði en Sigríður 240.

Árni fór upp á svið og þakkaði fyrir sig. Árni er raddsterkur maður en rödd hans var veik uppi í pontu. Augljóst að honum var brugðið. Eftir að hann kvaddi fóru menn að stinga saman nefjum og skoða úrslitin. Kliður fór um salinn og fólk spurði hvað annað hvort það hefði örugglega tekið rétt eftir. Að það hefði munað svona gríðarlega litlu.

Þarf nú að vanda mig

„Þetta er ekki óskaniðurstaða,“ sagði Árni Páll Árnason skömmu eftir að úrslitin voru kunngjörð.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við greiðum atkvæði á landsfundi með þessum hætti þar sem allir eru í kjöri. Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af því sérkenni Samfylkingarinnar að kjósa formann í beinni kosningu. Ég hef talið það flokknum mjög til styrkleika og tekið eftir því að aðrir forystumenn í íslenskum stjórnmálum hafa öfundað mig af því skýra umboði sem ég fékk í allsherjaratkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum. En þetta eru leikreglurnar og við erum að vinna eftir þeim. Ég kvarta ekki yfir leikreglunum og hef aldrei gert,“ sagði hann og bætti við að niðurstaðan setti ríkar skyldur á hans herðar.

„Ég þarf að vanda mig mjög vel í framhaldinu. Ég hef enga sérstaka gagnrýni heyrt á mín störf frá því að þetta mótframboð kom fram. Ég hef heyrt almenn orð en ég hef enga beina gagnrýni heyrt hvað ég hefði átt að gera öðruvísi eða eitthvað slíkt. En ég tek auðvitað allri slíkri gagnrýni ef hún kemur fram.“

Ljóst sé að niðurstaðan sé til vitnis um að landsfundarfulltrúar hafi deildar meiningar um forystuna. „Það er alveg augljóst mál.“

Enginn óvinafögnuður

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir var þakklát þeim fjölmörgu sem hringdu, sendu skilaboð og vildu fá hana í formannsembættið. „Það var auðvitað mjög mjótt á munum en ég vil óska Árna Páli til hamingju með að hafa verið endurkjörinn. Ég er þeim þakklát sem ýttu á mig og það er augljóst að krafan um breytingar innan flokksins er mikil. Ég sé ekki annað en að við munum vinna öll saman að því og það er enginn óvinafögnuður í Samfylkingunni. Óvinurinn er hægristjórnin.

Fyrst maður tapar þá er gott að tapa svona. En ég held að við verðum sterkari eftir þessa kosningu,“ sagði Sigríður Ingibjörg.

Hélt að framboðið væri grín

Kristján Möller studdi Árna Pál til formanns en hann sagðist aldrei hafa kynnst öðru eins.

„Ég var íþróttafulltrúi til margra ára og framkvæmdi skíðamót og annað slíkt. Ég hef oft séð menn sigra með einu sekúndubroti eða marki á síðustu stundu. En að sjá það gerast í formannskjöri í flokknum, það hefði ég aldrei geta ímyndað mér,“ sagði Kristján og bætti við að þegar hann sá frétt á mbl um framboð Sigríðar hélt hann að það væri verið að gera grín.

„Ég fagna því að Árni hafi sigrað. Það var tekist á um formannsembættið og þetta framboð hennar var óvænt. Þegar ég sá fréttina um framboð hennar á mbl þá hélt ég að það væri verið að gera grín. Ég hafði engan pata af þessu framboði hennar. Ég hef alltaf verið stuðningsmaður þess að kosning til formanns eigi að fara í gegnum allsherjarkosningu eins og lög segja til um. Þá hefði Sigríður þurft að bjóða sig fram fyrir mánuði. Þá hefðu allir flokksmenn fengið að kjósa eins og við höfum yfirleitt alltaf gert. Nema þegar Jóhanna var ein í framboði,“ sagði Kristján Möller.

Þungavigtarmenn tjá sig ekki

Margir voru greinilega í talsverðu uppnámi og alls staðar stakk fólk saman nefjum til þess að ræða niðurstöðuna. Fáir vildu hins vegar tjá sig um hana við fjölmiðla. Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagðist ekki vilja tjá sig um niðurstöðuna og sama átti við um Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formann flokksins. Oddný G. Harðardóttir alþingismaður sagðist ekki vera búin að mynda sér skoðun á niðurstöðunni þegar eftir því var leitað.

Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður sagði aðspurð að niðurstaðan segði ekkert um stöðu Samfylkingarinnar. „Þetta segir bara að sá sem vann vann og sá sem tapaði tapaði.“

Skellur fyrir Árna Pál

Eva Indriðadóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, sagði niðurstöðuna skell fyrir Árna Pál.

„Þetta er náttúrlega sjokkerandi niðurstaða fyrir flokkinn og pínu skellur fyrir Árna Pál. Það er núna bara undir honum komið að sýna hvað í honum býr og leiða flokkinn í betri átt,“ sagði hún. Niðurstaðan sé þannig skilaboð til hans um að spýta í lófana. „Það gerist varla skýrara en þetta.“