Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte, var endurkjörin formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í fyrradag. Endurkjörin í stjórn SVÞ voru þau Ari Edwald, Árni Stefánsson hjá Húsasmiðjunni og Margrét G.
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte, var endurkjörin formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í fyrradag. Endurkjörin í stjórn SVÞ voru þau Ari Edwald, Árni Stefánsson hjá Húsasmiðjunni og Margrét G. Flóvenz hjá KPMG. Ný í stjórn koma þau Áslaug Hulda Jónsdóttir hjá Hjallastefnunni, Gestur Hjaltason hjá ELKO og Sigríður Margrét Oddsdóttir hjá Já upplýsingaveitum.