Söngur Kristjana Skúladóttir syngur.
Söngur Kristjana Skúladóttir syngur.
Heimilislegir sunnudagar verða á Kex Hostel á morgun, 22. mars kl. 13. Dagskrá þessa viðburðar, sem annarra á staðnum á sunnudögum er sérsniðin fyrir fjölskyldufólk á öllum aldri og góð dægrastytting fyrir þau sem vilja fara út úr húsi á sunnudögum.
Heimilislegir sunnudagar verða á Kex Hostel á morgun, 22. mars kl. 13. Dagskrá þessa viðburðar, sem annarra á staðnum á sunnudögum er sérsniðin fyrir fjölskyldufólk á öllum aldri og góð dægrastytting fyrir þau sem vilja fara út úr húsi á sunnudögum. Að þessu sinni mun Kristjana Skúladóttir, leik- og söngkona, syngja lög af plötu sinni Obbosí og lesa uppáhalds barnasögu sína fyrir gesti. Boðið verður upp á samsöng og dans fyrir alla, unga sem aldna. Enginn aðgangseyrir er á Heimilislega sunnudaga og eru allir velkomnir.