Sjónarspil Nemendur í Breiðholtsskóla þyrptust út á skólalóðina í gær til þess að fylgjast með sólmyrkvanum en um 52 þúsund sólmyrkvagleraugum var dreift í grunnskóla á landinu í vikunni.
Sjónarspil Nemendur í Breiðholtsskóla þyrptust út á skólalóðina í gær til þess að fylgjast með sólmyrkvanum en um 52 þúsund sólmyrkvagleraugum var dreift í grunnskóla á landinu í vikunni. — Morgunblaðið/Júlíus
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Þetta var magnað og alveg hreint stórkostlegt,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, um sólmyrkvann sem náði hámarki klukkan 9:37 í gærmorgun.

„Þetta var magnað og alveg hreint stórkostlegt,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, um sólmyrkvann sem náði hámarki klukkan 9:37 í gærmorgun. Sólmyrkvi verður þegar tunglið gengur milli sólar og jarðar og myrkvar sólina að hluta til eða í heild frá jörðu séð. Í Reykjavík huldi tunglið 97,5% sólar.

Sævar Helgi segir að bestu skilyrðin til að fylgjast með sólmyrkvanum í gær hafi verið á Íslandi. Þau hafi verið mun betri hér en í Færeyjum og á Bretlandseyjum.

„Það var magnað að sjá hvernig rökkvaði og það myndaðist þessi furðulega birta. Ég hef upplifað þetta nokkrum sinnum áður en finnst þetta alltaf jafn magnað,“ segir Sævar Helgi en hann var staddur fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands, ásamt þúsundum öðrum, en þar var haldin sólmyrkvahátíð í tilefni dagsins. Gríðarleg stemning myndaðist á svæðinu og var áhugi fólks á þessum merka atburði augljóslega mikill. Hópurinn taldi niður í sameiningu, og þegar hámarkinu var náð brutust út mikil fagnaðarlæti.

Meðal viðstaddra voru hjónin Edward og Hailey Gomez, stjörnufræðingar frá Cardiff í Wales, en þau gerðu sér sérstaka ferð til Íslands til að fylgjast með sólmyrkvanum, rétt eins og margir aðrir. Edward segir þau hjón hafa sett sig í samband við Sævar Helga og ákveðið að taka þátt í gleðinni með honum. „Það er ekki hægt að lýsa þessu. Þetta var töfrum líkast,“ segir Edward. Hailey tekur undir og segir það hafa verið dásamlegt að deila upplifuninni með öllu þessu fólki.

Almyrkvi verður næst árið 2026

Mörgum þótti kólna þegar tunglið þakti sólina að mestu en samkvæmt upplýsingum Halldórs Björnssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, lækkaði hitinn um rúma hálfa gráðu á meðan deildarmyrkvinn stóð sem hæst.

„Við erum með færanlega stöð til að sleppa loftbelg sem var upphaflega keyptur til að geta mælt ýmislegt í tengslum við eldgos. Blaðran náði tuttugu og fjögurra kílómetra hæð. Það varð 0,7 gráðu kólnun sem fylgdi sólmyrkvanum í Reykjavík. Sólargeislunin og hitinn fylgdust að í þessu,“ segir hann.

Hafi landsmenn ekki fengið nægju sína af sólmyrkvum geta þeir huggað sig við það að aðeins eru ellefu ár þangað til almyrkvi verður, eða hinn 12. ágúst 2026. Mun hann sjást vel í Reykjavík. davidmar@mbl.is

Lúðrar þeyttir og trumbur barðar í skugga sólmyrkva

Fólk átti stefnumót víðsvegar um landið í gær þegar sólmyrkvinn gekk yfir. Þúsundir manna söfnuðust saman fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands, fjöldi kom saman við Hallgrímskirkju og víða voru skíðasvæði opnuð til þess að fólk gæti fylgst með fyrirbærinu úr nokkurri hæð. Þá fylgdust ásatrúarmenn með sólmyrkvanum frá lóð félagsins í Öskjuhlíð og var eldur kveiktur, lúðrar þeyttir og trumbur barðar. Að því loknu var fyrsta skóflustungan tekin að nýju höfuðhofi félagsins.

Grunnskólanemendur hópuðust víðast hvar út á skólalóðir en tugum þúsunda sólmyrkvagleraugna hafði verið dreift í grunnskóla landsins. Fjölmargir erlendir stjörnu- og veðurfræðingar heimsóttu einnig landið vegna myrkvans og á meðan sumir tóku þátt í hátíðarhöldum voru aðrir uppteknir við mælingar og rannsóknarstörf.