Mynd úr safni af Mánabergi eftir umfangsmiklar endurbætur á skipinu.
Mynd úr safni af Mánabergi eftir umfangsmiklar endurbætur á skipinu. — Morgunblaðið/Kristján
Skipakaup Gengið hefur verið frá kaupum útgerðarfélagsins Brims hf á togaranum Mánabergi ÓF af Ramma hf. Fréttavefurinn Sax greinir frá að Mánaberg verði afhent í byrjun nýs kvótaárs en Mánaberg er annað skipið sem Brim kaupir af Ramma.

Skipakaup Gengið hefur verið frá kaupum útgerðarfélagsins Brims hf á togaranum Mánabergi ÓF af Ramma hf. Fréttavefurinn Sax greinir frá að Mánaberg verði afhent í byrjun nýs kvótaárs en Mánaberg er annað skipið sem Brim kaupir af Ramma. Var það fyrra Kleifaberg RE.

Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um mun Rammi kaupa nýjan frystitogara frá tyrknesku skipasmíðastöðinni Tersan. Er nú búið að upplýsa að skipið fær nafnið Siglfirðingur SI. Er fyrirhugað að skipið verði tilbúið í desember 2016.

ai@mbl.is