ACTIO ráðgjöf Ingibjörg Björnsdóttir hdl. hefur stofnað fyrirtækið ACTIO ráðgjöf sf.
ACTIO ráðgjöf Ingibjörg Björnsdóttir hdl. hefur stofnað fyrirtækið ACTIO ráðgjöf sf. sem sérhæfir sig í heildstæðri fyrirtækjaráðgjöf með áherslu á uppbyggingu öflugs rekstrargrunns og/eða endurskipulagningu rekstrargrunns til að ná fram betri rekstrarhagkvæmni. Ingibjörg lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands árið 2005, lögmannsréttindum árið 2007 og er viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík. Ingibjörg stofnaði EMBLU lögmenn ehf. árið 2008 ásamt Herdísi Hallmarsdóttur hrl.