Ragnar Hólm heldur sýningu á nýjum vatnslitamyndum og málverkum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag, skírdag, kl. 14.
„Á sýningunni er að finna röð vatnslitamynda af þekktum húsum í bænum en einnig landslagsmyndir, myndir tengdar fluguveiði og myndir af fólki. Titill sýningarinnar vísar annars vegar til þess að vetur breytist í vor en hins vegar til þess að á þessum árstíma er allra veðra von, stundum nái vetur konungur aftur tímabundið yfirhöndinni á vorin,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sýningin verður aðeins opin yfir páskana, en opið verður alla daga kl. 14-17.