Píratar hafa sótt í sig veðrið og mælast nú með 21,7% fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup, en mældust með 15% fylgi þegar niðurstöður voru síðast birtar 2. mars sl.

Píratar hafa sótt í sig veðrið og mælast nú með 21,7% fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup, en mældust með 15% fylgi þegar niðurstöður voru síðast birtar 2. mars sl. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 25% fylgi, Samfylking 15,8%, Björt framtíð 10,9%, Framsóknarflokkur 10,8% og Vinstri grænir 10,1%.

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur minnkað um 2% frá síðustu könnun og stendur nú í 35%.

Mælingar fóru fram á tímabilinu 26. febrúar til 30. mars. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV í gær. Mikil hreyfing var á fylgi flokkanna á fyrri hluta könnunartímabilsins, 26. febrúar til 11. mars, en það breyttist hins vegar nokkuð á seinni hluta þess, 12. mars til 30. mars. Á fyrra tímabilinu mældist fylgi Pírata 16%, en 26% á því seinna. Þá mældust Vinstri grænir með 12% fylgi á fyrra tímabilinu en 8% á því seinna. Sveiflan hjá Sjálfstæðisflokknum var úr 27% í 24%, en hjá Framsókn, Samfylkingu og Bjartri framtíð minnkaði fylgið um 2% milli tímabila.