Framhaldsskólar Samningar höfðu verið lausir frá 4. febrúar.
Framhaldsskólar Samningar höfðu verið lausir frá 4. febrúar. — Morgunblaðið/Golli
Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is Fulltrúar Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins skrifuðu í gærmorgun undir nýjan kjarasamning og vinnumat vegna ríkisrekinna framhaldsskóla.

Ingileif Friðriksdóttir

if@mbl.is

Fulltrúar Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins skrifuðu í gærmorgun undir nýjan kjarasamning og vinnumat vegna ríkisrekinna framhaldsskóla. Eins og kunnugt er felldu félagsmenn Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum nýverið samkomulag frá 4. febrúar um nýtt vinnumat og þar með voru samningar þeirra lausir.

Könnun meðal félagsmanna leiddi í ljós að 76% þeirra voru fylgjandi því að gengið yrði á ný til samninga á grundvelli vinnumatsins. Í kjölfarið settust samninganefndirnar niður og byggist samningurinn sem undirritaður var í gær á hugmyndafræði þess.

Líkur fyrri samningi

„Þetta er mikill léttir og það er gott að þetta er búið,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, í samtali við Morgunblaðið. Hún segir nýtt samkomulag í helstu atriðum líkt hinu fyrra en nú sé búið að jafna mun á milli greina, styrkja ramma utan um ráðningarhlutföll og tryggja það að sýnidæmi vinnumats gildi sem lágmarksviðmið.

„Við teljum að við séum búin að lagfæra helstu gallana sem félagsmenn okkar sáu á þessum samningi tæknilega,“ segir Guðríður og bætir við að hún vonist til þess að samningurinn verði samþykktur.

Nýtt samkomulag var sent félagsmönnum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum seinnipartinn í gær en formleg kynning á því verður strax eftir páska. Í framhaldi verða greidd atkvæði um samkomulagið og á þeirri atkvæðagreiðslu að vera lokið eigi síðar en 15. apríl.