Ríkisstjóri Arkansas í Bandaríkjunum krefst þess að frumvarpi sem myndi veita fyrirtækjum rétt til að mismuna fólki eftir kynhneigð verði breytt áður en hann skrifar undir það. Miklar deilur hafa orðið um málið í Arkansas og Indiana þar sem sambærilegt frumvarp varð að lögum í vikunni sem leið.
Verði frumvarpið að lögum bannar það ríkisstjórninni í Arkansas og sveitarstjórnum að skerða trúarlegt frelsi án þess að veigamiklir hagsmunir liggi að baki. Asa Hutchinson, ríkisstjóri Arkansas, sem kemur úr röðum repúblikana, ætlaði í fyrstu að skrifa undir frumvarpið svo það yrði að lögum, en hann segir nú að þingmenn á ríkisþinginu verði að breyta texta þess þar sem það megi ekki gera fyrirtækjum kleift að mismuna fólki eftir kynhneigð. Hutchinson hefur legið undir miklum þrýstingi frá réttindahópum samkynhneigðra og stórum vinnuveitendum í ríkinu.