Aalesund – Tromsö 0:2 • Daníel Leó Grétarsson sat á bekknum hjá Aalesund allan tímann en Aron Elís Þrándarson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Lilleström – Stabæk 0:2 • Finnur Orri Margeirsson fór af velli á 86.
Aalesund – Tromsö 0:2
• Daníel Leó Grétarsson sat á bekknum hjá Aalesund allan tímann en Aron Elís Þrándarson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
Lilleström – Stabæk 0:2
• Finnur Orri Margeirsson fór af velli á 86. mínútu en Árni Vilhjálmsson lék síðasta hálftímann. Rúnar Kristinsson þjálfar Lilleström og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari.
Viking – Rosenborg 1:4
• Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 63 mínúturnar fyrir Viking, Indriði Sigurðsson fyrirliði var ekki í hópnum vegna meiðsla og Steinþór Freyr Þorsteinsson sat á bekknum. Björn Daníel Sverrisson er frá keppni vegna meiðsla.
• Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan tímann fyrir Rosenborg.
Start – Vålerenga 2:3
• Matthías Vilhjálmsson skoraði síðara mark Start en hann lék allan leikinn sem og Guðmundur Kristjánssson en Ingvar Jónsson var varamarkvörður.
• Elías Már Ómarsson var ónotaður varamaður hjá Vålerenga.
B-deild:
Levanger – Sandnes Ulf 0:0
• Hannes Þór Halldórsson fyrirliði stóð á milli stanganna í liði Sandnes Ulf.
A-deild kvenna:
Lilleström – Sandviken 1:0
• Guðbjörg Gunnarsdóttir lék allan tímann í markinu hjá Lilleström.
Stabæk – Avaldsnes 0:0
• Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan tímann með Stabæk.
• Hólmfríður Magnúsdóttir lék allan tímann með Avaldsnes en Þórunn Helga Jónsdóttir var á bekknum.
Kolbotn – Klepp 1:1
• Katrín Ásbjörnsdóttir lék allan tímann fyrir Klepp. Jón Páll Pálmason þjálfar liðið.