Annríki var nokkurt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina og stafaði það mikið til af uppátækjum borgara í annarlegu ástandi.
Annríki var nokkurt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina og stafaði það mikið til af uppátækjum borgara í annarlegu ástandi. Aðfaranótt sunnudags var óskað eftir aðstoð lögreglu við sundlaugina í Grafarvogi en þar hafði hópur drukkinna ungmenna farið í laugina. Þá voru tveir grunaðir um ölvun við akstur og einn um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ölvaðar konur ollu einnig nokkru ónæði, önnur á veitingahúsi en hin í leigubíl.