Einar Árni Jóhannsson
Einar Árni Jóhannsson
Einar Árni Jóhannsson skrifaði í gær undir samning til þriggja ára sem þjálfari meistaraflokks Þórs í Þorlákshöfn í körfuknattleik karla. Einar Árni tekur við liðinu af Benedikt Guðmundssyni sem stýrt hefur liðinu með góðum árangri undanfarin ár.

Einar Árni Jóhannsson skrifaði í gær undir samning til þriggja ára sem þjálfari meistaraflokks Þórs í Þorlákshöfn í körfuknattleik karla.

Einar Árni tekur við liðinu af Benedikt Guðmundssyni sem stýrt hefur liðinu með góðum árangri undanfarin ár.

Einar Árni hefur þjálfað í Njarðvík undanfarin ár bæði meistaraflokk og nú síðast sem yfirþjálfari yngri flokka en Njarðvík varð Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2006. Einnig hefur hann þjálfað yngri landslið KKÍ. Þórsarar höfnuðu í 7. sæti í Dominos-deildinni á tímabili og voru slegnir út af Tindastóli í 1. umferð úrslitakeppninnar. gummih@mbl.is