Opnaður hefur verið nýr vefur þar sem birtar verða á einum stað auglýsingar um opinber útboð. Markmið hans er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um fyrirhuguð innkaup á vegum opinberra aðila. Á vefnum utbodsvefur.
Opnaður hefur verið nýr vefur þar sem birtar verða á einum stað auglýsingar um opinber útboð. Markmið hans er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um fyrirhuguð innkaup á vegum opinberra aðila. Á vefnum utbodsvefur.is birtast auglýsingar og tilkynningar um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Undir það flokkast innkaup ríkis, sveitarfélaga og veitufyrirtækja þegar fjárhæðir innkaupa eru yfir innlendum og erlendum útboðsmörkum . Á útboðsvefnum geta opinberir aðilar einnig auglýst innkaup undir viðmiðunarmörkum til að tryggja gegnsæi.