María Friðriksdóttir fæddist 28. febrúar 1926. Hún lést 21. apríl 2015. Útför Maríu var gerð 6. maí 2015.
Elsku amma.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Bergþór Bjarki, Tómas Tjörvi, Böðvar Breki, Baldvin Barri og Snorri Sveinn.