Áhrifamikill Burden skömmu eftir að hann lét skjóta sig í handlegginn.
Áhrifamikill Burden skömmu eftir að hann lét skjóta sig í handlegginn.
Bandaríski myndlistarmaðurinn Chris Burden lést í fyrradag, 69 ára að aldri, af völdum krabbameins.
Bandaríski myndlistarmaðurinn Chris Burden lést í fyrradag, 69 ára að aldri, af völdum krabbameins. Burden vakti fyrst athygli sem gjörningalistamaður og frægur er sá gjörningur hans þegar hann lét vin sinn skjóta sig í handlegginn með riffli í galleríi í Kaliforníu árið 1971. Sá gjörningur nefndist „Shoot“. Af öðrum þekktum gjörningum má nefna „Trans-Fixed“ frá árinu 1974 en þá lét Burden krossfesta sig á Volkswagen. Á seinni hluta ferils síns sneri Burden sér meira að skúlptúrum og útilistaverkum og þá m.a. flóknum, véldrifnum skúlptúrum. Síðasta verkið sem Burden lauk við verður sýnt frá 18. maí í Los Angeles County Museum of Art. Það nefnist „Ode to Santos-Dumont“ og er svífandi skúlptúr, tileinkaður einum af frumkvöðlum flugsins.