Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nokkrir aðilar hafa sýnt fasteigninni Grensásvegi 16a áhuga með ýmsa notkun í huga.
Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að eignin var seld fjárfestum um áramótin.
Félagið Alhetta keypti þannig hluta af eigninni af Sameinaða lífeyrissjóðnum og Stöfum lífeyrissjóði og var kaupsamningi þinglýst 7. janúar.
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁ Verks, á fjórðungshlut í Alhettu en aðrir eigendur eru Guðmundur B. Gunnarsson, Jónas Andrés Þór Jónsson og loks Einar Gíslason í gegnum félagið Kjarnholt.
Spurður hvernig Alhetta hyggist nota eignina segir Gylfi enga ákvörðun hafa verið tekna í því efni. Húsið þarfnist breytinga og viðhalds til að uppfylla nútímakröfur, hver svo sem notkunin verði.
Til skoðunar að opna hótel
Samkvæmt heimildum blaðsins hefur komið til álita að opna hótel í húsinu. Gylfi segir það einn af möguleikum sem hafi verið nefndir.Haft var eftir Kristjáni Arnari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins, í Morgunblaðinu í desember, skömmu áður en kaupsamningur var undirritaður, að söluverðið væri undir auglýstu verði, sem var 210 milljónir. Húsið er 1.700 fermetrar.
Þegar húseign selst undir auglýstu verði gæti það verið merki um takmarkaða eftirspurn. Að sögn Gylfa hefur eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu aukist mikið frá því í byrjun hausts 2014, á síðustu 7-8 mánuðum, og þá einkum utan miðkjarna Reykjavíkur.
Stór fasteignafélög leiti kauptækifæra. Borgartúnið hafi verið eftirsótt en síðan gefið eftir, meðal annars vegna takmarkaðs framboðs bílastæða. Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði í öðrum hverfum sé að aukast. Það er í takt við verðþróun á íbúðarhúsnæði. Fyrst hækkaði verðið í miðborginni og svo tók verðið í úthverfum að hækka.