Nýliðar kveðja. V-AV
Norður | |
♠-- | |
♥107543 | |
♦D8 | |
♣ÁD8764 |
Vestur | Austur |
♠9 | ♠G10876543 |
♥9 | ♥6 |
♦KG109762 | ♦54 |
♣KG95 | ♣102 |
Suður | |
♠ÁKD2 | |
♥ÁKDG82 | |
♦Á3 | |
♣3 |
Suður spilar 7G.
Bridsfélag nýliða kvaddi veturinn með 14 para tvímenningi í síðustu viku. Hápunktur kvöldsins var slemmuspilið að ofan, sem stjórnandinn, Ómar Olgeirsson, setti á Facebook-síðu félagsins.
Hinn almenni samningur var 6♥, en tvö pör náðu 7♥ og uppskáru vel. Eitt par spilaði 7G. Sú slemma er vafasöm en vinnst eins og legan er nema út komi lauf. Vill lesandinn reyna, til dæmis með hjartaútspili?
Svíning í laufi gefur tólfta slaginn og sá þrettándi skilar sér í lokin með þvingun í láglitunum. Sagnhafi leggur niður ♦Á í upplýsingaskyni og rúllar svo niður öllu góðgætinu í hjarta og spaða. Þegar síðasti hálitaslagurinn er tekinn lendir vestur í klemmu. Hann á eftir ♦K og ♣KG9 og neyðist til að henda laufi. Þá svínar sagnhafi ♣D og fær þrettánda slaginn á laufhund.
Fanney Júlíusdóttir og Eygló Karlsdóttir urðu efstar þetta lokakvöld með 59% skor.