Benjamin Netanyahu
Benjamin Netanyahu — AFP
Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, kynnti í gær ráðherraskipan ríkisstjórnar sinnar.
Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, kynnti í gær ráðherraskipan ríkisstjórnar sinnar. Eftir tveggja mánaða samningaviðræður tókst honum að skapa sátt um ráðherraembættin en þegar bera átti ríkisstjórnina undir þingið til samþykktar frestaði Netanyahu liðnum um tvær klukkustundir til þess að friða samflokksmenn sína sem voru ósáttir við sín hlutverk.