Sterka laufið. S-Allir
Norður | |
♠ÁKD | |
♥ÁD1092 | |
♦8732 | |
♣6 |
Vestur | Austur |
♠10976542 | ♠8 |
♥6 | ♥G8753 |
♦10 | ♦65 |
♣K873 | ♣ÁD1092 |
Suður | |
♠G3 | |
♥K4 | |
♦ÁKDG94 | |
♣G54 |
Suður spilar 4G.
Það er gömul saga og ný að sterka laufið er viðkvæmt fyrir hindrunum. Skoðum nýlegt dæmi frá landsliðskeppni öldunga í Bandaríkjunum. Suður opnar á 1♣ (16+), vestur hindrar í 2♠ og norður segir 3♥ – eðlileg sögn og krafa í geim. Austur passar og suður á leikinn.
Setjum nafnspjöld á höfuðáttirnar: Suður er Doug Simson, vestur Zia Mahmood, norður Jeff Aker og austur Michael Rosenberg. Frá sjónarhóli Simsons er 3G líklegasta niðurstaðan og hann kannar þann möguleika með því að segja 3♠. Sögnin er óræð hlerun í stöðunni, en biður makker alla vega að segja 3G með fyrirstöðu í spaða.
Sagði Aker 3G? Ekki beinlínis. Zia doblaði 3♠, kerfisbundið til að VARA VIÐ útspili í spaða. Öfugsnúinn stíll, sem er algengur í hópi atvinnumanna. Aker redoblaði (fyrirstaða) og Simson sagði 3G. Nú átti Aker of mikið til að passa og lyfti mjúklega í 4G. Allir pass og lauf út.