Kvikmyndin Hrútar , í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, var ekki lengi að tylla sér á toppinn á aðsóknarlistanum þegar hún kom í kvikmyndahús.

Kvikmyndin Hrútar , í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, var ekki lengi að tylla sér á toppinn á aðsóknarlistanum þegar hún kom í kvikmyndahús. Síðan hefur hún þó þurft að lúta í lægra haldi fyrir stórmyndum frá Hollywood en er engu að síður enn ofarlega á aðsóknarlistanum og hefur komið sér vel fyrir í þriðja sæti listans.

Stórmyndin Jurassic World kemur ný inn á toppinn en hér er á ferðinni stórkostleg ævintýramynd í leikstjórn Colins Trevorrow og með þau Chris Pratt, Bryce Dallas Howard og Vincent D'Onofrio í aðalhlutverkum. Kvikmyndin Spy , sem er í leikstjórn Pauls Feig, er í öðru sæti listans en hér er á ferðinni skemmtileg gamanmynd um njósnarann sem búinn er að sitja fastur við skrifborð í fjölda ára og hefur ekki fengið tækifæri til að fara á vettvang.