Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur formlega óskað eftir viðræðum við Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra um hugmyndir um aukinn sveigjanleika á milli skólastiga. Í bréfi til menntamálaráðherra kemur fram að hugmyndirnar snúist um að kanna kosti þess og galla að flytja samræmd próf 10. bekkjar til vors í 9. bekk, og gefa þeim nemendum sem það kjósa kost á að hefja fyrr nám í framhaldsskóla. Útskrift geti orðið að vori í 9. bekk eða um áramót í 10. bekk.
Borgin reki framhaldsskóla
Í öðru lagi að hleypt verði af stokkunum verkefni, í borginni í heild eða einstökum hverfum, þar sem nemendum á efstu árum grunnskóla verði gert ennþá auðveldara að ljúka skilgreindum áföngum fyrsta árs í framhaldsskólanámi samhliða námi í níunda og tíunda bekk.Í þriðja lagi að efnt verði til viðræðna um rekstur Reykjavíkurborgar á einum eða fleiri framhaldsskólum í tilraunaskyni, til að auka samfellu í námi og vinna að ofangreindum áherslum.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að þegar hafi farið fram óformlegar viðræður og að málið hafi verið í skoðun í ráðuneytinu um hríð. Hann segir að ágætur samhljómur sé á milli borgarinnar og ráðuneytisins um aukinn sveigjanleika.
„Ég fagna þessum áhuga. Reykjavík er stærsta sveitarfélagið og eins hefur komið fram áhugi hjá öðrum sveitarfélögum um að þau komi að rekstri framhaldsskóla,“ segir Illugi.