[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Teiknistofan Gláma-Kím varð hlutskörpust í samkeppni Íslandshótela og Minjaverndar vegna nýs hótels í Lækjargötu í Reykjavík.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Teiknistofan Gláma-Kím varð hlutskörpust í samkeppni Íslandshótela og Minjaverndar vegna nýs hótels í Lækjargötu í Reykjavík.

Ólafur Torfason, forstjóri Íslandshótela, segir að hugmyndinni verði vísað til skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Hann bindur vonir við að skipulagið verði samþykkt í haust þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir í ársbyrjun 2016. Stefnt sé að því að opna hótelið í mars eða apríl 2018.

Hann tekur fram að útlit hússins hafi ekki verið ákveðið endanlega en vinningstillöguna má sjá hér til hliðar, ásamt tveimur öðrum tillögum.

Fjöldi herbergja hefur ekki verið ákveðinn og segir Ólafur að á þessu stigi sé miðað við 120-135 herbergi.

Íslandshótel keyptu húseignina Skólabrú 2 í byrjun ársins og verður það hús tengt við nýja hótelið.

Vilja kaupa Vonarstræti 4

Þá hafa Íslandshótel áhuga á að kaupa fasteignina Vonarstræti 4 en þar er Bílastæðasjóður nú til húsa. Eru uppi hugmyndir um að það hús yrði líka hluti af hótelinu.

Viðræður Íslandshótela og Reykjavíkurborgar vegna Vonarstrætis 4 munu hefjast á næstunni.

Fram kom í Morgunblaðinu 20. nóvember síðastliðinn að fulltrúar Íslandsbanka annars vegar og Íslandshótela og Hafnareyjar, dótturfélags Minjaverndar, hins vegar hefðu skrifað undir kaupsamning vegna Lækjargötu 12. Þar var Íslandsbanki lengi með útibú.

Að sögn Ólafs verður það hús rifið og þá m.a. vegna skemmda sem burðarvirki hússins varð fyrir í eldsvoða á síðustu öld. Fornminjar hafa fundist norður af Lækjargötu 12 og fer þar nú fram uppgröftur. Ólafur segir að eftir eigi að ákveða framhaldið varðandi fornminjarnar og hvernig unnið verði með þær. Fram kom í Morgunblaðinu í fyrrahaust að hótelið verði fjögurra stjörnu.